Ekki er hægt að segja til um endanlegan kostnað við uppsetningu og annað er viðkemur Plögginu. Þar af leiðandi er ekki raunhæft að nefna neinar tölur um áskriftargjöld. Hinsvegar er það einlæg von þeirra sem að verkefninu standa að kostnaður rafbílaeigenda verði ekki nema 25-30% af þeim orkukostnaði sem er við rekstur hefðbundins bensín- eða díselbíls í dag.