Nissan hefur kynnt nýjan rafbíl, Nissan LEAF. Bíllinn er áhugaverður á margan hátt og er m.a. með mjög háþróað tölvukerfi. Það verður spennandi að sjá þróunina á þeim bílum sem stóru framleiðendurnir munu koma með hver á fætur öðrum á komandi misserum.
Helstu tækniatriði bílsins:
Mál
Lengd: 4445 mm
Breidd: 1770 mm
Hæð : 1550 mm
Lengd milli hjóla: 2700 mm
Eiginleikar
Drægni: 160km
hámarkshraði 140km
Mótor
Tegund: AC mótor
Hámarksafl : 80kW (107 hestöfl)
Hámarkstog : 280Nm
Rafhlöður
Tegund: laminated lithium-ion rafhlaða
Rýmd : 24kWh
Afl úrtak : yfir 90kW
Fjöldi rafhlaðna (cella): 48
Hleðslutími: hraðhleðsla (0 to 80%) undir 30 mínútum; venjulegur 16A tengill 240V hleðsla: 6 til 8 klst.
Það má segja að þessi bíll sé það sem framleiðendur eigi að fókusa á, því þetta er sú stærð og eiginleikar sem mjög margir eru að leita eftir. Líklega verður þessi bíll vinsæll ef verðið verður "rétt".
Tesla Motors verksmiðjurnar í Kaliforníu hafa fengið staðfestingu frá bandarískum yfirvöldum um að þau muni lána fyrirtækinu 465 milljónir bandaríkjadala eða sem nemur tæpum 60 milljörðum íkr. Þessi lán veitir bandaríkjastjórn þeim bílaframleiðendum sem hyggjast framleiða umhverfisvæna bíla og falla undir mjög strangar kröfur sem gerðar eru til þeirra.
Er ætlunin að nota 365$ milljónir af þessari upphæð til að byggja samsetningarverksmiðju fyrir Tesla Módel S bílinn. Mun þessi verksmiðja ein skapar um 1.000 ný sérhæfð störf. Fyrir fáum vikum síðan keypti þýska Daimler Bens samsteypan 10% hlut í Tesla fyrirtækinu og samhliða því var gerður samstarfssamningur milli þessara tveggja fyrirtækja. Gengur hann út á að Daimler muni aðstoða Tesla við uppbyggingu þessarar verksmiðju en að auki mun Daimler hefja framleiðslu á rafbílum árið 2012 með rafbíla tækni frá Tesla.
Restin af láninu eða 100$ milljónir mun verða notað til að byggja aðra verksmiðju þar sem drifrásin í Tesla bílana verður smíðuð. Í þessari verksmiðju verður jafnframt byggðar drifrásir fyrir aðra rafbílaframleiðendur sem hyggjast fara í fjöldaframleiðslu. Um 650 ný störf verða til í þessari verksmiðju.
2012 boðar nýtt upphaf í notkun bíla á Íslandi. Markmiðið er að bílafloti landsmanna verði að stærstum hluta knúinn áfram af raforku fyrir árslok 2012.
Til að það markmið náist þarf fyrst að sannfæra Íslendinga um að þetta sé framkvæmanlegt. 2012 hefur þegar hafist handa við að byggja upp kerfi sem gefur notendum rafbíla kost á því að Plögga bílana sína við rafhleðslupósta um land allt. Það mun tryggja að eigendur rafbíla geta keyrt áhyggjulausir um landið þó að hleðslan minnki.
Í dag birtast auglýsingar í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu þar sem verkefnið er kynnt í stuttu máli.
Í býgerð er að opna nýjan vef og hefur það aðeins dregist af tæknilegum orsökum. Til að sýna stuðning í verki er hægt að tengja sig á Facebook og Twitter hér að neðan.
Á vef Umhverfisráðuneytisins kemur fram að umhverfisráðherra hafi kynnt síðastliðin föstudag skýrslu sem ber heitið „Möguleikar til að draga úr nettóútstreymi gróðurhúsalofttegunda á Íslandi“. Er þetta niðurstaða sérfræðinganefndar sem starfað hefur á vegum ráðuneytisins síðan á vordögum 2007. Skýrslan er mikill doðrantur eða um 232 blaðsíður enda margir sem standa að henni og mikið sem þarf að segja. Með tilkomu þessarar skýrslu sem og annarra sem settar hafa verið fram um orku- og umhverfismál er gerð tilraun til að opna augu almennings fyrir þeirri vá sem við stöndum frammi fyrir í loftlagsmálum og reynt að finna lausnir sem hægt er að byggja á.Svo telja menn líka að grundvöllur sé til aðgerða og kemur það glöggt fram í skýrslunni. Möguleikarnir eru margir og væri það að æra óstöðugan að telja þá alla upp hér. Við viljum bara benda fólki á að lesa skýrsluna en hana er hægt að nálgast hér. Frétt á vef umhverfisráðuneytisins er hér .
Svo viljum við líka benda á nokkrar góðar skýrslur og aðila sem eru tengdar þessu efni og er að finna á heimsíðum hinna ýmsu ráðuneyta og stofnanna.
2004 Vettvangur um vistvænt eldsneyti.
2004 tók til starfa Vettvangur um vistvænt eldsneyti . Vettvangurinn hefur það að markmiði að vera stjórnvöldum til ráðgjafar í málefnum er varða eldsneytisnotkun. Eitt meginverkefnið er að kanna möguleika á því að nota hinar endurnýjanlegu orkulindir okkar til þess að búa til eldsneyti (eða orkubera) sem væri umhverfisvænna en það jarðefnaeldsneyti sem við notum og um leið samkeppnishæft hvað kostnað varðar. Sem dæmi um hugsanlega orkubera í þessu tilliti má nefna vetni, lífdísilolíu sem unninn er úr lífrænum úrgangi, metan sem einnig er unnið úr úrgangi, tilbúna gerfidísilolíu og hreinlega rafmagn. Niðurstöður þessarar vinnu kom m.a. fram í skýrslunni hér að neðan.
2005 - Vistvænt eldsneyti Eftir Ágúst Valfells en hann hætti í nefndinni eftir útgáfu þessa rits.
Skýrslan sem er unnin af starfsmönnum iðnaðarráðuneytis og Orkustofnunar, gefur yfirlit yfir markmið og leiðir að því að draga úr notkun innflutts jarðefnaeldsneytis með eldsneytissparnaði og nýtingu á innlendum orkugjöfum. Meginmarkmiðin eru þau að draga úr losun gróðurhúsaloftegunda og um leið áhrifum síhækkandi olíuverðs á þjóðarbúskapinn. Talið er verulega megi spara í eldneytisnotkun bifreiða bæði með nýjum og bættum gerðum bíla en ekki síður með breyttri hegðan neytenda. Meginleið Íslendinga hlýtur að vera sú að nýta rafmagn í samgöngum og mest orkunýtni fæst með beinni notkun rafmagns.
Steingrímur Ólafsson, iðnrekstrarfræðingur, hefur skrifað skýrslu sem ber heitið ,,Rafbílar á Íslandi - fýsilegur kostur." Gerð skýrslunnar var styrkt af iðnaðarráðuneytinu og Orkusjóði. Höfundur skýrslunnar mælir eindegið með að tekið verði til vandlegrar skoðunar að rafmagn verði notað til að drífa áfram einkabifreiðar landmanna.
Subaru Stella EV í fjöldaframleiðslu
sunnudagur, 7. jún
Blekið var varla þornað á fréttatilkynningu Mitsubishi um að fyrirtækið hefði hafið fjöldaframleiðslu á iMiEV rafbílnum þegar Subaru sendi frá sér fréttatilkynningu um samskonar efni. Subaru var ekki sátt við að Mitsubishi fengi alla fjölmiðlaumfjöllunina svo þeir vildu láta vita af því að hafin væri framleiðsla á Stella EV rafbílnum. Þrátt fyrir að fjöldin verði ekki eins mikill í byrjun hjá Subaru þar sem þeir hyggjast einungis framleiða 170 bíla í ár þá vilja þeir samt vera með í slagnum um athyglina. Byrjað verður að selja bílinn í Japan í júlí næstkomandi.
Subaru Stella EV er heldur minni bíll en iMiEV bíllinn og með minni rafhlöður. Stella EV er hugsaður meira sem borgarbíll og fyrir daglegar styttri vegalengdir. Stella EV hefur 47 kWh lithium-ion rafhlöðupakka sem hægt er að hlaða fullan með hefðbundnum 220-volta tengli á 5 kls. Einnig er hægt að nota hraðhleðslu sem bíllin styður og þá er hægt að hlaða 80% hleðslu á aðeins 15 mínútum. Fullhlaðinn kemst bíllinn um 90km. vegalegnd og er það sem dæmi tæplega þrisvar sinnum sú vegalengd sem meðal bílnum í Reykjavík er ekið daglega. Með öðrum orðum þá væri nóg að hlaða annan hvern dag miðað við þá keyrslu. Hámarkshraði bílsins er um 105km. og segja fróðir menn að það sé töluvert meira en leyfilegt er að aka hér á landi.
Verðið á þessum fyrstu Stella EV bílum í Japan er hærra en á Mitsubishi iMiEV bílnum og vekur það svolitla furðu. Á meðan að iMiEV bíllinn er fær í flestan sjó er Stella EV einungis ætlaður sem borgarbíll með minni drægni og stærðarlega er hann líka minni.
Þess má auðvitað geta að fleiri bílaframleiðendur hafa framleitt bíla í þúsundavís s.s. Th!nk í Noregi, Smith í Bretlandi og REVA á Indlandi en það eru sérhæfðir rafbílaframleiðendur meðan Subaru og Mitsubishi eru meðal þeirra stóru hefðbundnu.
Mitsubishi hefur tilkynnti að þeir hafi hafið fjöldaframleiðslu á iMiEV rafbílnum í verksmiðju sinni í Okayama í Japan. Með þessu er Mitsubishi fyrstir af stóru bílaframleiðendunum til að hefja fjöldaframleiðslu á rafbíl. Gert er ráð fyrir að flestir stóru framleiðendanna muni fylgja í fótspor Mitsubishi á þessu ári og næstu tveimur. Að sögn heimilda verða framleiddir um 2,000 bílar á þessu ári og strax á næsta ári verða þeir um 5,000. Þessir fyrstu bílar eru hugsaðir fyrir fyrirtæki og stofnanir en bílarnir fara í almenna sölu á seinni hluta næsta árs.
iMiEV hefur um 160km. drægni á fullri hleðslu og er með lithium ion rafhlöður. Rafhlöðurnar eru framleiddar í samvinnu við fyrirtækið GS Yuasa. Verð bílsins miðað við gengi 06.06.09 og með ríkisstuðningi í Japan er um 3,8 milljónir sem er ívið hærra en búist hafði verið við. Ekki hefur verið tilkynnt um það hvenær bílarnir verða væntanlegir á markað á vesturlöndum.
Þess má geta að svona bílar (með hægri stýri) eru væntanlegir hingað til lands í haust til reynsluaksturs samkvæmt samkomulagi sem Össur Skarphéðinsson þáverandi iðnaðarráðherra gerði við Mitsubishi síðastliðið haust. Er það ánægjulegt til þess að vita að bílarnir fari í reynsluakstur hér á landi og verður það Orkusetur á Akureyri sem mun sjá um það.
Útsendarar 2012 voru á EVS24 rafbíla-ráðstefnunni sem haldin var í Stavanger í Noregi dagana 13 – 16 maí og fengu að reynsluaka iMiEV bílnum þar. Að sögn þeirra er iMiEV mjög skemmtilegur bíll í akstri og uppfyllir flestar þær þarfir sem gerðar eru til slíkra bíla. Að þeirra mati verður þetta góð söluvara þegar hafin verður sala á bílnum hér á landi og við vonum bara fyrir hönd Heklu sem er umboðsmaður Mitsubishi hér á landi að það verði sem allra fyrst.
Á blaðamannafundi í gær tilkynntu Daimler og Tesla Motors að þessi fyrirtæki muni hefja nána samvinnu um rafbíla og jafnframt að Daimler muni kaupa 10% hlut í Tesla Motors. Nú þegar er Daimler að nota rafhlöðu- og rafhleðslutækni frá Tesla fyrir Smart ED bílinn.
Blaðamannafundurinn var haldinn í Mercedes Benz safninu í Stuttgard sem er ekki leiðinleg umgjörð um slíkar tilkynningar.
Það voru Elon Musk stofnandi og aðaleigandi Tesla Motors ásamt Dr. Thomas Weber yfirmanni þróunardeildar Daimler samsteypunnar sem kynntu herlegheitin. Eins og fram kom í máli Dr. Weber þá koma saman „gamli og nýji“ bílaiðnarðurinn. Tesla Motors er tákn þess sem koma skal og hefur Tesla á undraskömmum tíma tekist að umbylta allri hugsun er varðar rafbíla og möguleika þeirra í framtíðinni. Á sama máta er Daimler tákn þess rótgróna og vandaða í bílaiðnaði og eins og flestir vita er Benz vörumerkið tákn fyrir að vera eitt það þekktasta og áhrifamesta í bílaiðnaðinum.
Daimler hefur viðurkennt eftir að hafa verið í þróun á m.a. tvinn-bílum þá sé það endanlega rafbíllinn sem sé framtíðin. Mercedes hefur verið að prófa rafbíla alveg frá því 1970 með rafhlöðu knúnum sendibílum.
Dr. Weber hrósaði því hvernig Tesla Motors hafi á undraskömmum tíma tekist að koma á markað sportbíl knúnum rafmagni og ekki bara það heldur bíl sem sé öðrum rafbílum fremri að flestu leiti. Á sama máta telur Dr. Weber að einstakur andi hjá stjórnendum Tesla muni hafa áhrif á bæði fyrirtækin í náinni framtíð.
Í grófum dráttum þá mun samstarfið ganga út á það að Daimler munu nota tæknina frá Tesla fyrir væntanlegar útgáfur af Smart bílnum sem fer í fjöldaframleiðslu árið 2012 með LiTec rafhlöðum. Daimler mun jafnframt útvega Tesla tæknibúnað fyrir sína framleiðslu á rafbílum. Fyrirtækin munu einnig vinna saman á öðrum sviðum og er ætlunin að Mercedes muni m.a. koma að framleiðslu á Model S bílnum frá Tesla. Aðalmarkmiðið er að flýta því að Model S bíllinn komi á markað. Mercedes getur aðstoðað við það með þekkingu sinni á fjöldaframleiðslu bíla.
Daimler greiddi háa upphæð fyrir 10% í Tesla Motors með möguleika á frekari kaupum síðar. Elon Musk sagði hinsvegar að hægt hefði verið að fá umtalsvert hærra verð fyrir hlutabréfin en hann valdi það að selja þau til Daimler sökum þeirrar tækniaðstoðar sem fylgdi með. Dr. Weber sagði að rafbílatæknin frá Tesla muni verða notuð í allar gerðir bíla frá Benz í framtíðinni þar á meðal atvinnubíla. Bæði fyrirtækin segjast ætla að einbeita sér í sameiningu að því að þróa rafhlöðutæknina með það í huga að koma henni í fjöldaframleiðslu. Daimler mun fá mann í stjórn Tesla og einnig er ætlunin að tæknimenn frá Tesla muni byrja strax að vinna hjá Mercedes í rafbíladeild fyrirtækisins.
Að mati margra eru þetta stórtíðindi í bílaiðnaðinum og ekki síst sú yfirlýsing Benz að þeir ætli sér nú að nota Tesla tæknina í allar gerðir sinna bíla í framtíðinni.
Daimler er einn af stærstu bílaframleiðendum heims og þeir ásamt Nissan Renault samsteypunni stefna á rafbíla sem framtíðarlausn og ætla að einbeita sér að þeirri tækni.
Pelle goes electric
fimmtudagur, 14. maí
Camilla
Elise
Nora
Trude
Á EVS24 ráðstefnunni í Stavanger eru fjórar hressar stelpur sem eru að sýna VW Bjöllu sem þær hafa breytt í rafbíl. Þetta eru þær Elise Roksrad, Trude Giseth, Camilla Nilsen og Nora Verland. Sagan er í stuttu máli sú að þær ákváðu að breyta gamalli VW Bjöllu í rafbíl þrátt fyrir að hafa enga sérþekkingu á bílum. Vildu þær sýna fram á að þetta væri hægt og að hver sem er gæti gert þetta. Það tók þessar stelpur rétt um 30 daga að klára bílinn og gera hann gangfæran með rafmótor og rafhlöðupakka. Bjallan er frekar einföld í smíðum og með drifbúnaðinn á afturöxlinum þannig að auðvelt var að tengja beint við þann búnað sem fyrir var. Gírskiptingin fékk að vera áfram. Þær stöllur keyptu tilbúin breytingar pakka fá fyrirtækinu RebirthAuto í Bandaríkjunum. Þær viðurkenna að hafa fengið smá aðstoð frá vélvirkjum en að það hafi verið frekar lítið.
Markmiðið hjá stelpunum var að klára bílinn fyrir EVS 24 ráðstefnuna og sýna bílinn þar og það tókst. Var ákveðið í byrjun að nota Pellesem er þekkur „löggubíll“ í Noregi og hefur verið notaður í kynningarherferðir fyrir umferðaröryggi. Pelle þekkja allir í Noregi og má segja að þær hafi slegið í gegn með því að nota hann. Í desember á þessu ári verður hafin sýning á nýrri teiknimynd þar sem Pelle verður rafbíll og hefur það m.a. sem verkefni að kynna umhverfisvænar samgöngur. Stelpurnar ætla að vinna með framleiðenda teiknimyndarinnar til að kynna hana. Markmiðið með því er að vekja fólk til umhugsunar um umhverfisvernd.
Yfirskrift verkefnisins er „Pelle goes electric “ og hvernig þær hafa kynnt verkefnið hefur vakið óskipta athygli og er rétt að byrja . Þær hafa sýnt fram á að þær fjórar, bráðungar stelpur með engan bakgrunn í bílabreytingum geti gert þetta á einungis einum mánuði. Benda þær síðan á alla hina bílana sem á eftir að breyta. Nú er ykkar kæru Norðmenn að sýna hvers þið eruð megnugir. Þetta gæti einnig orðið hvatning til okkar hér á landi til að skoða hvaða möguleikar felast í því að breyta núverandi bílaflota í rafbíla en meira um það síðar.
Stelpunum hefur verið boðið að koma með Pelle til Íslands í haust og eru þær jákvæðar fyrir því.
Barak Obama með nýja áætlun
miðvikudagur, 20. maí
Í gær kynnti Barack Obama Bandaríkjaforseti áætlun um að draga úr útblæstri bifreiða og annarra ökutækja, um þriðjung fyrir árslok 2016. Er markmiðið að olíunotkun Bandaríkjamanna og minka mengun og losun koldíoxíðs. Bílaframleiðendur og neytendasamtök vestan hafs styðja áform forsetans og telja það muni hafa góð áhrif á bílamarkaðinn. Samkvæmt áætluninni ber bílaframleiðendum að stórbæta eldsneytisnýtingu bifvéla, eða um 5% á ári milli 2012 og 2016. Markmiðið er að í lok tímabilsins muni venjulegur heimilisbíll komast um 63 km á einu bensíngalloni að jafnaði og vörubílar um 48 km.
Hummer er í Bandaríkjunum talin vera tákn um eyðslufrekan bíl sem jafnframt mengar mikið. Nú hefur fyrirtækið Raser þróað grind og tengil-tvinn-bílatækni fyrir stærri jeppa m.a. Hummer, með rafmótor, rafstýribúnaði og rafhlöðusetti ásamt 2.0 ltr. bensínvél sem notuð er til að framleiða rafmagn fyrir rafmótorinn. Með þessum búnaði kemst þessi annars eyðslufreki bíll heila 160 km. á einu bensíngalloni. Með þessu er Hummer orðin talsvert eyðslugrennri en tvinnbíllinn Prius (sem fer 82km á bensíngalloni) og má segja að þetta sé dæmi um hvert þróunin stefnir.
Verði farið eftir áætlun forsetans mun olíunotkun Bandaríkjamanna minnka um 1,8 milljarða tunna á ári. Útblástur að sama skapi minnkar um 34%. Áhrifin eru umtalsverð og jafngilda því að taka um 58 milljónir bifreiða úr notkun. Áætlanir gera ráð fyrir því að bílaverð muni hækkað töluvert, eða um 1.300 dollara að jafnaði, en á móti kæmi minni eldsneytiskostnaður.
Að margra áliti þá munu þessar aðgerðir hafa veruleg áhrif á þróun rafbíla og flýta fyrir því að þeir fari í fjöldaframleiðslu.