Þegar bíllinn kom fyrst fram á sjónarsviðið voru margir framleiðendur sem notuðu rafmagn sem orkugjafa. Meðal þeirra var Henry Ford sem framleiddi rafbíl með mótor fyrir hvert hjól. Þróunin varð samt sú að bensínbílar urðu ofan á og þegar Ford hóf fjöldaframleiðslu á T-módelinu þá varð það bensínbíll. Bílaframleiðendur hafa síðan þá verið í nánu samstarfi við olíufyrirtækin og lítið sem ekkert hefur breyst. Vélarnar byggja á sömu grunnhugmyndinni, eru bara stærri og aflmeiri. Mengunin frá vélunum er svipuð eða meiri þrátt fyrir alla hvarfakútana og mengunarvarnirnar enda hafa vélarnar stækkað og aflið aukist. Gírskiptingar eru samskonar og verið hafa frá upphafi nema hvað sjálfskiptingin bættist við. Enn er töluverð hljóðmengun þrátt fyrir hljóðkútana og svona mætti lengi telja.
Öll viðmið í bílaframleiðslu breytast með tilkomu rafbíla. Við getum talið upp ótal atriði en nefnum hér aðeins örfá, sem mestu máli skipta:
Reiknað er með að kostnaður við að nota rafmagn sem orkugjafa sé u.þ.b. 15-30% af núverandi kostnaði við rekstur hefðbundins bíls.
Enginn kolefnisútblástur eða CO2 mengun – þurfum við að ræða það eitthvað frekar?
Engin hljóðmengun – sama hér!
Einn gír fram, einn gír afturábak
Léttar einfaldar vélar með fáum íhlutum og álagspunktum gera viðhald einfaldara og ódýrara
Einfalt að hlaða – bara Plögga sig!
Mun meiri kraftur en í hefðbundnum bensínbílum
Öll skynsamleg rök leiða að því að ódýrara og betra sé að nota rafbíla
Flöskuhálsinn til þessa hefur verið rafhlaðan. En þróunin á rafhlöðum hefur verið hröð síðustu árin vegna mikillar eftirspurnar á rafhlöðum fyrir smátæki s.s. ferðatölvur og farsíma. Hefur þetta leitt til þess að rafhlöður urðu minni og aflmeiri. Með tilkomu Lithium rafhlaðna varð rafbílinn raunhæfur kostur sem samkeppni við hefðbundna bíla sem brenna jarðefnaeldsneyti.
Fyrir utan að CO2 mengun rafbíla er engin þá eru kostirnir svo margir að dæmið er auðreiknað.
2012 Nýtt upphaf | Laekjargötu 4 | 101 Reykjavík | Sími 587 2012 | Fax 587 2012 | 2012@2012.is